Færsluflokkur: Bloggar
Ef svo ólíklega skildi vilja til að gróðurhúsaáhrifin séu loksins farinn að hafa áhrif á ykkar langfreðnu heilabú og þið loksins að vakna til meðvitundar um grafalvarlet ástand þjóðarinar stígið án tafar inn í framkvæmdina.Sleppið þessu nefndarbull skipan sem á að hafa frjálsar hendur og skilar loks af sér mörg þúsund síðna skýrslu á máli sem þið ekki einu sinni skiljið.Hér skiptir hraði og snerpa höfuð máli.Þó þurfi að sjóða saman lög um frystingu eigna ,farbanns,loka fyrir leiðina á að eignir og auður þessara manna sé færður á aðrar kenitölur velð frekar þá leið og dragið þessa menn til ábygðar fyrir gjörðir sínar.Gull og silfur eiga þeir nóg af.Þeim ber að engurgreiða þjóðinni sérhverja krónu sem þeir stálu frá henni með blekkingum, lygum, svikum knúnir áfram af friðlausri fíkn um hvar þeir geti haft út næsta þúsundkallinn til svölunar græðgi sinnar. Krafa þjóðarinnar er skýr, endurgreiðið okkur fé það sem þið stáluð af okkur á lúalegan og lákúrulegan hátt.Síðan megið þið allra vegna kaupa ykkur hæð yfir Grænlandi og vera þar til eilífð nóns. Ykkar verður ekki sakknað.
_______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
Bloggar | 18.1.2009 | 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Geir: Árið verður mjög erfitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.1.2009 | 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Telja að óreiðumenn stjórni bönkunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.1.2009 | 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá lyggur það ljóst fyrir að sögusagnir um dauða Maddömunar hafa verið stórlega ýktar og henni farið stjarnfræðilega fram í klofbragði á lofti eða var þetta útspil sniðglíma með eldsnöggum hælkrók.Nú er lag að slá út einu trompinu enn og fara brosandi með fullnaðar sigur af hólmi.
Sylvíu Nótt sem næstu formóður flokksins.Hún mun teikna á skýin framtíð flokksins milli þess sem hún raular "Til hamingju Framsókn nú fer þetta vel því hún Sylvía ykkar einfaldlega Evrópu stel"
Loksins get ég farið sáttur í bólið fullviss um að morgni hrökkvi ég ekki upp í svitabaði eftir martröðum hlaðna nótt.
Framsókn vill sækja um ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.1.2009 | 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fátt eitt reynir eins mikið á mitt bágstadda taugakerfi og það að þurfa að versla annars lagið í stórmörkuðum. Einn óveðursdaginn fyrir skemmstu ákvað ég að leita skjóls í verslun bleika grísins á Laugaveginum einkum vegna þess að ísskápurinn minn innihélt aðeins hálft oststykki og botnfylli af smjöri í dós. Ég flúði þarna inn, ekki til á mér þurr þráður, greip einu lausu innkaupakerruna og fór að spássera um búðina.
Ég hef einu sinni á æfi minni farið í bjargsig og fuglagargið þar voru sem himneskir tónar miðað við hávaðann í þessari verslun. Þarna úði og grúði saman þeim mesta fjölda kvenna sem ég hef lengi séð og á öllum aldri. Ýmist stóðu þær saman með einn til tvo barnavagna á gangvegunum, að hnakkrífast um verð, dásama verð eða mæla með hinu og þessu. Æpandi og skrækjandi börn hlupu spretthlaup fram og aftur sveiflandi varningi sem krafist var að mamma keypti og einum tvisvar sinnu var ég hlaupinn um koll. Grátur og gnístran tanna heyrðist frá hverjum gangi fyrir sig og í nokkur skipti stríðsöskur sem sjálfur Tarzan hefði orðið stoltur af.
Örhægt en bítandi mjakaðist ég áfram og týndi af handahófi ofan í kerruna það sem mig vanhagaði um. Reyndar var henni stolið þrisvar sinnum af mér en ég er þrjóskur maður og fann hana því fljótlega aftur eftir mátulegar skammir frá viðkomandi. Þegar framar dró í verslunina og fystikisturnar nálguðust dró ögn úr hávaðanum en að sama skapi jókst hraðinn. Þegar sama konan hafði keyrt einum sex sinnum aftan á hælana á mér og mig dauðfarið að kenna til, sneri ég mér við og bað hana vinsamlegast að gæta að þessu. Það hnussaði í henni en ég benti henni góðfúslega á að ef hún hefði tekið eldavélina , frystikistuna, sófasettið og blómagrindina sína með hefði sennilega ekkert af þessu gerst. Hún leit á mig augum eins og ég væri alræmdasti fjöldamorðingi sögunar, svei mér þá ef ég var bara ekki á góðri leið með að verða það.
Ég ákvað að fá mér humar í matinn þegar að fiski frystikistuni var komið. Með arnaraugum skannaði ég yfir innihald hennar og viti menn þarna blasti við síðsti humarpakkinn. Ég greip eldsnöggt í hann en fann að togað var fast á móti. Ég togaði fastar en ekki lét pakkinn undan. Togað var þétt á móti. Þá leit ég upp. Glæsileg dökkhærð kona hélt um pakkann brosti og sagði síðan "Ég sá hann fyrst" Ég hélt nú ekki og um þetta þráttuðum við góða stund. Þá sagði sú dökkhærða og brosti heillandi. "Verðum við þá ekki að borða hann saman" Ég var búinn að fá nóg af þessari vitfyrru tók pakkann fékk henni símanúmmerið mitt og heimilisfang og sagði henni að humarinn yrði tilbúinn á slaginu átta um kvöldið. Ég greiddi fyrir vörurnar og hét að stíga aldrei fæti mínum hér inn oftar.
Á slaginu átta um kvöldið hringdi dyrabjallan mín og þarna stóð sú dökkhærða og brosti heillandi. Satt best að segja rak mig í rogastans. Við snæddum humarinn sem var meistaralega vel eldaður og skröfuðum um alla heima og geima. Þegar ég vaknaði morguninn eftir rak ég augun í miða á náttborðinu mínu sem á stóð. "Takk fyrir kornflexið þó humarinn hafi verið margfallt betri". Á borðinu lá líka rauð rós og spjald með símannúmmeri.
Hvort tveggja var raunverulegt.
Bloggar | 16.1.2009 | 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún er skondinn þessi auglýsing sem sést á sumum strætisvörnunum og kallaði fram glott á smetti mér er ég sá hana fyrst. "Seldubíl tvö,taktu strætó" Nú er lag upp með nýja auglýsingu á þá alla eitthvað á þessa leið. "Seldu bíl eitt og taktu strætó"
Ég neitaði að taka þátt í þessum skrípaleik fyrir mörgum mánuðum síðan.Seldi skrjóðinn og ferðast með Strætó.Þó það taki mig stundum klukkutíma að komast í vinnuna ber ég harm minn í hljóði og ef biðtíminn er farinn að reyna á mitt langlundar geð og ég farinn að góna fullur öfundar á glæsikerrur er fram hjá mér aka, þá einfaldlega arka ég af stað.Merkilegt hvað hreyfng eins og ganga gerir góða hluti fyrir heilatuðruna og fyllir hana af jákvæðni og trú á mannlífið.Það má öllu venjast og tekur um þrjá mánuði að festa vanan í sessi.Hér áður fyrr gat ég ekki verið bíllaus nú get ég ekki án göngunar verið.En vissulega eigið þið bíleigendur samúð mína alla svona hlutir eru ofar mínum skilning og löngu orðið tímabært að þessum endalausu verðhækkunum linni.
Verð á eldsneyti hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.1.2009 | 05:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ingibjörg Sólrún lengur frá en áður var talið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.1.2009 | 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gapir nú þingheimur?
Tæpast gapir þjóðin sem reynt hefur að vekja Þyrnirósu upp af svefni sínum en ekki tekist,því það hefur verið flokkað sem skrílsháttur að henni,ómerkileg aðför,kunnáttuleysi,dónaskapur og fleira í þeim dúr.Aðallega af þeim er vilja hafa Teboð þar sem ráðamenn fá að sötrasitt te í friði og narta í sína jólaköku.
Er þessu fólki fyrirmunað að skilja að vandinn leysist ekki af sjálfu sér.Eins og frægur maður sagði hér um árið "Þúsund mílna ganga hefst á einu skrefi"
Er ekki mál að þetta lið spretti upp frá teboðinu og dattist af stað,okkur er orðið ramt í geði körgu,því kleinur ekki kunna við í kviðnum á Ingibjörgu.
Neita að tryggja Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.1.2009 | 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Áfram heldur blekkingin og skrípaleikurinn.Bróðir emírsins orðinn 25 milljörðum fátækari og ugglaust viti sínu fjær af reiði.Leggjumst því öll á bæn og vonum að hann sigi ekki Osabin á okkur og minnismerki "Útrásarmömbunar" fái að halda sér.
Sennilega er eina von okkar að leita á náðir þess teinótta grátbiðja hann að storma kuflklæddan inn í eyðimörkina splæsa nokkrum Margarítum í hitanum og slá upp listsýningu þar sem rekja mætti sögu þorskstofnsins.
Hvað eru 25 milljarðar á milli vina.Við verðum bara að vona að greind þeirra Arababúa sé á við Flóridaappelsínu.
Áfram bíðum við í ofvæni eftir næsta þætti þessa spennandi framhaldsleikrits.Hver gekk af þjóðinni nær dauðri?Hún sjálf?Eða eru allir saklausir og sökudólgurinn skýstrókur sem átti upptök sín í nágreni Texas en ákvað að flýja síðan hingað til gósenlandsins.Sópaði síðan að sér öllu sem hægt var að sópa og hvarf... vonandi fæst svar í næsta þætti.Spennum því beltin þangað til.
25 milljarða króna greiðsla týnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.1.2009 | 06:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áhyggjur af greiðsluþroti sveitarfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.1.2009 | 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 18.1.2009 Vaki vaki vaskir menn.
- 17.1.2009 Æðsti embættismaður þjóðarinnar með tilfinningagreind undir f...
- 17.1.2009 Óreiðumenn.
- 16.1.2009 Þar kom að því að rödd Maddömunar hljómaði landshorna í milli.
- 16.1.2009 Kynlegir réttir.
- 16.1.2009 Svífum seglum þöndum.
- 15.1.2009 Trúin flytur fjöll.
- 15.1.2009 Jóla - hvað!!!!
- 15.1.2009 Leitið og þér munið finna.
- 13.1.2009 Nú er lag.
- 12.1.2009 Svartar Mömbur samanfléttaðar í haug....
- 12.1.2009 Þvílík endemis lákúra.
- 7.8.2007 Fjölskyldumálaráðuneyti.....löngu orðinn tímabær hlutur.
- 25.7.2007 Fótum sínum á hann Hannes Hólmsteinn blessaður fjör að launa.
- 24.7.2007 Af gyltunum skulið þér þekkja þá......
Bloggvinir
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar