Svífum seglum þöndum.

Hún er skondinn þessi auglýsing sem sést á sumum strætisvörnunum og kallaði fram glott á smetti mér er ég sá hana fyrst. "Seldubíl tvö,taktu strætó" Nú er lag upp með nýja auglýsingu á þá alla eitthvað á þessa leið. "Seldu bíl eitt og taktu strætó"

Ég neitaði að taka þátt í þessum skrípaleik fyrir mörgum mánuðum síðan.Seldi skrjóðinn og ferðast með Strætó.Þó það taki mig stundum klukkutíma að komast í vinnuna ber ég harm minn í hljóði og ef biðtíminn er farinn að reyna á mitt langlundar geð og ég farinn að góna fullur öfundar á glæsikerrur er fram hjá mér aka, þá einfaldlega arka ég af stað.Merkilegt hvað hreyfng eins og ganga gerir góða hluti fyrir heilatuðruna og fyllir hana af jákvæðni og trú á mannlífið.Það má öllu venjast og tekur um þrjá mánuði að festa vanan í sessi.Hér áður fyrr gat ég ekki verið bíllaus nú get ég ekki án göngunar verið.En vissulega eigið þið bíleigendur samúð mína alla svona hlutir eru ofar mínum skilning og löngu orðið tímabært að þessum endalausu verðhækkunum linni.


mbl.is Verð á eldsneyti hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband