Leitið og þér munið finna.

Áfram heldur blekkingin og skrípaleikurinn.Bróðir emírsins orðinn 25 milljörðum fátækari og ugglaust viti sínu fjær af reiði.Leggjumst því öll á bæn og vonum að hann sigi ekki Osabin á okkur og minnismerki "Útrásarmömbunar" fái að halda sér.

Sennilega er eina von okkar að leita á náðir þess teinótta grátbiðja hann að storma kuflklæddan inn í eyðimörkina splæsa nokkrum Margarítum í hitanum og slá upp listsýningu þar sem rekja mætti sögu þorskstofnsins.

Hvað eru 25 milljarðar á milli vina.Við verðum bara að vona að greind þeirra Arababúa sé á við Flóridaappelsínu.

Áfram bíðum við í ofvæni eftir næsta þætti þessa spennandi framhaldsleikrits.Hver gekk af þjóðinni nær dauðri?Hún sjálf?Eða eru allir saklausir og sökudólgurinn skýstrókur sem átti upptök sín í nágreni Texas en ákvað að flýja síðan hingað til gósenlandsins.Sópaði síðan að sér öllu sem hægt var að sópa og hvarf... vonandi fæst svar í næsta þætti.Spennum því beltin þangað til.


mbl.is 25 milljarða króna greiðsla týnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband